12desember

Nemendur íþrótta- og heilsufræðibrautar HÍ

Sem nemendur íþrótta- og heilsufræðibrautar HÍ eru þið félagar í Vatninu, nemendafélags nema á íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ.

Frá sameiningu Íþróttakennaraskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) hefur félagið verið undir Stúdentaráði Kennaraháskóla Íslands (SKHÍ). Ár hvert hefur SKHÍ fengið ákveðinn hluta skrásetningargjalds nemenda, þið með talin, inn í KHÍ. Taka skal fram að þetta á bæði við um nemendur í grunnnámi og nemendur í framhaldsnámi.

Fyrir þetta skólaár, 2008 til 2009, varð engin breyting á.

5.800 kr. af skrásetningargjaldinu sem þið greidduð (í heild 45.000 kr.) runnu til SKHÍ. Af þessum fjármunum fær Vatnið greiddar 1.000 kr. á hvern nemenda í grunnnámi. SKHÍ greiðir 1.000 kr. per nemanda til Byggingarfélags Námsmana (BN) og þar af leiðir fara 3.800 kr. til SKHÍ, meðal annars á grundvelli þess að félagið sjái um ytri hagsmuna mál okkar, nemenda á íþrótta- og heilsufræðibraut.

Við sameiningu HÍ og KHÍ færðist þetta hlutverk SKHÍ, það er að sjá um ytri hagsmál, yfir til Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ). SKHÍ hefur greitt SHÍ fyrir alla þá þjónustu sem það áður gegndi gagnvart ytri hagsmunamálum nemenda eins og fulltrúi í LÍN, útdeiling og prentun stúdentakorta og afslættir sem þeim fylgja, uppihald hagsmunabaráttu á skrifstofu ráðsins, hagsmunafulltrúa, útgáfa Stúdentablaðsins, sameiginlegar skemmtanir o.m.fl.

SKHÍ greiddi SHÍ alls 258.000 kr., eða 750 kr. á hvern nemenda í staðnámi innan Menntavísindasviðs fyrir þetta skólaár.

Hver nemandi á íþrótta- og heilsufræðibraut greiðir þannig 3.800 kr. fyrir þetta skólaár til SKHÍ í ytri hagsmunabaráttu. SKHÍ greiðir 750 kr. fyrir hvern staðnema til SHÍ fyrir þetta skólaár. Ósamið er hins vegar um gjald SKHÍ-stúdenta til Félagsstofnunar Stúdenta (FS, félag sem þjóna á stúdentum innan HÍ), en við höfum nú þegar aðgang að þeirri þjónustu sem þau veita (t.d. leikskólaplássi).

Eftir að SKHÍ hefur greitt til SHÍ, BN og Vatnsins standa eftir 3050 kr. sem þú hefur greitt til SKHÍ. Eitt er víst að þessir peningar fara ekki í hagsmunamál nemenda eða aðra réttinda baráttu.

Við í stjórn Vatnsins ætlum að fara fram á það að þessi peningar renni til félagsins, þar sem við teljum að þeir nýtist nemendum á íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ best.

Á næstu dögum mun fara fram undirskriftarsöfnun til að styðja þessa kröfu okkar.

Styður þú þessa kröfu?

Fyrir hönd Vatnsins, nemendafélags nema á íþrótta- og heilsufræðibraut
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, formaður... Nánar
12. desember 2008 klukkan 13:46
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
04nóvember

ÍKÍ vs. HR og Halloween

Næsta föstudag kemur að stóru stundinni, heimsókn Akademíunnar (HR)
hinngað á laugarvatn. Nú er tími til að grípa aftur bikarinn góða og koma
honum á heimaslóðir!

Keppnisgreinarnar verða eftirfarandi:

- Blak
- Bandý
- Kíló
- Glíma
- Stígvélaspark

Keppendur óskast í þessar greinar.

Skrallið hefst klukkan 18:00 niðri í íþróttahúsi.

Eftir að við höfum gengið frá þeim (HR) út í húsi hefst svo þétt dagskrá.

Byrjað verður á að nærast í boði Vatnsins í matsalnum.

Þar næst verður fólki boðinn sá ógnvekjandi kostur að ganga í gegnum
draugakjallarann mikla!!!

Og svo verður slegið upp heljarin BALLI í kjallara stofunni!!!
Halloween/hrekkjavökuball!! Verðlaun verða veitt fyrir flottasta
búninginn, mest ógnvekjandi búninginn og skammar verðlaun fyrir lélegasta
búninginn!

Skemmtunin stendur fram eftir kvöldi og nóttu!

Þá er það bara að taka fram keppnisskapið og ógnvekjandi búning!

Lítið eitt atriði!

Öll þessi herleg heit kosta skitnar 500 kr. á kjaft (matur, ball,
draugahús + þrif)

Þrifin verða boðin út á fyrsta ári að þessu sinni.

kv. Vatnið... Nánar
04. nóvember 2008 klukkan 16:45
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
16október

Frá yfirvaldinu

Kæru nemendur


Þótt á móti blási þessa dagana er framtíðin á Íslandi björt og ætlum við,

háskólanemar, að stíga fyrstu skrefin í átt að þeirri framtíð.


Sjaldan hafa jafn góð tækifæri gefist til að hafa áhrif á eigin lífsgæði og

þörfin verið jafn mikil á sköpun nýrra viðskiptatækifæra. Því er mikilvægt

að virkja nýsköpunar og frumkvöðlaanda íslenskra háskólanema og ætlum við,

með ykkar aðstoð, að blása til Hugsprettu um helgina.


Á Hugsprettu, munu Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Magnús Scheving, Hrund

Andradóttir, Guðjón Már Guðjónsson, Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Haukur Ingi

Jónasson, Björk Guðmundsdóttir og hljómsveit í boði Iceland Airwaves, leiða

okkur í stefnumótun um framtíð Íslands. Það geta og eiga allir að vera með -

því hugmynd sem ekki er sett fram er týnt tækifæri. Framtíðin er okkar og nú

er tækifæri til að kasta fram öllum þeim hugmyndum sem velgst hafa í huga

okkar.


Fjölmennum í Háskólabíó klukkan 11-14 á laugardag og stígum fyrsta skrefið í

átt að nýju upphafi, nýrri hugsun og nýjum tækifærum.


(síða á facebook: http://www.facebook.com/event.php?eid=31816950661)... Nánar
16. október 2008 klukkan 20:49
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
15október

Tilboð í Borgarleikhúsið!

Ágætu stúdentar

Um leið og við þökkum fyrir Októberfest-dúndruna viljum við minna á að nú
fer hver að verða síðastur. En þó ber að hafa í huga að sá síðasti gæti
orðið fyrstur. En sá fyrsti verður að öllum líkindum ekki sá síðasti.

Það sér fyrir endann á kostakjörum Borgarleikhússins til stúdenta í
kortasölu þetta leikárið þar sem stúdentum gefst kostur á 4 leiksýningum á
4.450 krónur. Borgarleikhúsið verður á staðnum á Háskólatorgi til að spara
stúdentum metrana á morgun, miðvikudag frá 11-14. Ef stúdentar eiga þess
ekki kost að mæta á torgið á morgun geta þeir nálgast slíkt kort í
leikhúsinu sjálfu.

Neytið og njótið.

Ykkar,
SHÍ... Nánar
15. október 2008 klukkan 13:05
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
06október

Októberfest!

Hin mikla OKTÓBERFEST liggur núna fyrir dagana 9 til 11 október.


Dagskrá

 

Fimmtudagur:

  • Kl. 17:00 Opnunarhátíð með þýskasendiherranum og fallegum þýskum hljómum
  • 20:00 þýskt Bingó
  • þýskt sjónvarpsefni

Föstudagur:

  • Búningakeppni - Hver mætir í þýskasta búningnum
  • Mottukeppni - Hver er með glæsilegustu mottuna
  • Drykkjukeppni milli deilda - Hægt er að skora á deild/deildir í drykkjukeppni úr stígvèli
  • Þýsk tónlist verður spiluð alla daga

Laugardagur:

Verið er að sitja saman tilboðsverð sérstaklega fyrir okkur á Laugarvatni, þ.e.a.s. fyrir aðgang að hátíðinni föstudag og laugardag, aðal dagana.  Innifalið tónleikar með Mugison, Mamtú, Who Knew, Dikta og Agent Fresco.


Nánari upplýsingar um dagskrá, verð o.fl. birtist von bráðar.

Sjá einnig: www.oktober.is
06. október 2008 klukkan 14:37
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
24september

Söngvarakeppni

  Söngvarakeppnin
Suður landsins eina von 
 

 
Keppninni verður haldin áfram
fimmtudaginn 25. september.
Síðastliðinn fimmtudag komust þrír söngvarar frá okkur áfram og syngja þeir nú aftur
í
 Hvíta húsinu á Selfossi.
 

Húsið opnar kl 21:00 og hefst keppni
kl 22:00.


Frítt inn
 

Ath. Að Síðast fengu færri sæti en vildu og er því gott er að mæta tímanlega

 
Fjölmennum og hvetjum okkar fólk.
24. september 2008 klukkan 21:43
Nemendafélagið Vatnid
1 athugasemd
16september

Suður landsins eina von!

Nemendafélagið auglýsir hér með eftir keppendum í söngvarakeppni sunnlennskra skól sem ber nafnið ,,Suður landsins eina von"!  Okkur býðst að senda þrjá keppendur og fá þeir allir vegleg verðlaun, einungis fyrir það eitt að taka þátt!  Keppnin fer fram í Hvíta Húsinu á Selfossi og er útvarpað á Suðurlands fm.  Keppnin fer þannig fram að þrír keppendur frá hverjum skóla, samtals níu keppendur, etja kappi í sönglistinni næsta fimmtudag! Dómnefnd og áhorfendur velja síðan sex keppendur til að halda áfram en einn frá hverjum skóla situr eftir með sár raddböndin.  Keppnin endar svo með einum sigurvegara sem hlýtur gríðarlega, ótrúlega og geðveikislega flott verðlaun!

Keppendur skrái sig hjá Villa í s: 663-0013 email: viv12@hi.is eða bara í herb. 11.



16. september 2008 klukkan 16:30
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
11september

Heimsókn Kennó!!!!

 Föstudaginn 12. september 2008 kemur Stakkahlíðin í heimsókn.

Rúturnar fara af stað frá Stakkahlíð kl 16:00
og byrjar skemmtanahöldin í Íþróttafræðasetrinu kl 18:00.

(Allir mæta að sjálfsögðu í sínum bekkjarbúningum.)

Farið verður í skemmtilega leiki, nýja sem gamla.

Grillað, sungið, trallað svo að lokum verður haldið í Úthlíð á dansiball dansað og tjúttað fram á nótt.
 

OG SJÁIÐ!! ALLT FRÍKEYPIS !!!!! 

Vonum að flestir sjái sér fært um að mæta að sjálfsögðu með góða skapið.
 

Nemendaráð

11. september 2008 klukkan 22:57
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
26ágúst

Gleðilegt nýtt skólaár!

Skólaárið hefst formlega á fimmtudaginn næsta, en fyrsta árið byrjar kl. 80:30 á kynningum.  Um eitt hefst síðan hinar síðvinsælu mælingar!


Dagskráin hefst svo að fullu í næstu viku, en þá mætir annað og þriðja árið á staðinn! Eins og það sé ekki nóg þá verður stúdentaball Háskóla Íslands föstudaginn 5. sept!


Sálin hans Jóns míns mun leika fyrir dansi á Broadway!


Við, þið, Sódóma og Kanínan á Broadway!


1900 kr. inn en miðasala mun fara fram hjá stjórn nemendafélagsins.


Aukinheldur hefur heyrst að eðal poppgrúppan og miðbæjarpakkið Fm-Belfast verði með innkomu sem verði öllum til sóma og blóma. 

Sjáumst hress á fimmtudaginn!

Kv. Stjórnin

26. ágúst 2008 klukkan 22:40
Nemendafélagið Vatnid
Engin athugasemd
25apríl

Íþróttadagur ÍKÍ


Nú er komið að íþróttadegi ÍKÍ sem verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl.  Fjögur lið etja kappi; starfsmenn, fyrsta ár, annað ár og þriðja ár. Stigakeppni er á milli liða. 

Hátíðarhöldin hefjast kl. 14:00, mæting fyrir framan íþróttahúsið og endar þetta svo á grilli! 


Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
Kanóróður
Kk og kvk frá hverju liði
Skeifukast
Kk og kvk frá hverju liði
Glíma
2 kk og 2 kvk frá hverju liði
Boðhlaup
4 kk og 4 kvk frá hverju liði
Fótbolti (útsláttar keppni)
3 kk og 3 kvk frá hverju liði
Reipitog
Kúluvarp
Kk og kvk frá hverju liði
Pokahlaup
2 kk og 2 kvk frá hverju liði
Boðsund (4x50m)
2 kk og 2 kvk frá hverju liði



kv. Íþróttanefnd

25. apríl 2008 klukkan 15:58
Nemendafélagið Vatnid
7 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Nemendafélagið Vatnid
  • Staður: Laugarvatn
  • Atvinna: Nemar í íþróttafræði

Könnun

Á að mæta á Sálina? Jói splæsir!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...