Suður landsins eina von!
Nemendafélagið auglýsir hér með eftir keppendum í söngvarakeppni sunnlennskra skól sem ber nafnið ,,Suður landsins eina von"! Okkur býðst að senda þrjá keppendur og fá þeir allir vegleg verðlaun, einungis fyrir það eitt að taka þátt! Keppnin fer fram í Hvíta Húsinu á Selfossi og er útvarpað á Suðurlands fm. Keppnin fer þannig fram að þrír keppendur frá hverjum skóla, samtals níu keppendur, etja kappi í sönglistinni næsta fimmtudag! Dómnefnd og áhorfendur velja síðan sex keppendur til að halda áfram en einn frá hverjum skóla situr eftir með sár raddböndin. Keppnin endar svo með einum sigurvegara sem hlýtur gríðarlega, ótrúlega og geðveikislega flott verðlaun!Keppendur skrái sig hjá Villa í s: 663-0013 email: viv12@hi.is eða bara í herb. 11.
16. september 2008 klukkan 16:30
Nemendafélagið Vatnid
Nemendafélagið Vatnid
