Nemendur íþrótta- og heilsufræðibrautar HÍ
Nemendur íþrótta- og heilsufræðibrautar HÍSem nemendur íþrótta- og heilsufræðibrautar HÍ eru þið félagar í Vatninu, nemendafélags nema á íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ.
Frá sameiningu Íþróttakennaraskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) hefur félagið verið undir Stúdentaráði Kennaraháskóla Íslands (SKHÍ). Ár hvert hefur SKHÍ fengið ákveðinn hluta skrásetningargjalds nemenda, þið með talin, inn í KHÍ. Taka skal fram að þetta á bæði við um nemendur í grunnnámi og nemendur í framhaldsnámi.
Fyrir þetta skólaár, 2008 til 2009, varð engin breyting á.
5.800 kr. af skrásetningargjaldinu sem þið greidduð (í heild 45.000 kr.) runnu til SKHÍ. Af þessum fjármunum fær Vatnið greiddar 1.000 kr. á hvern nemenda í grunnnámi. SKHÍ greiðir 1.000 kr. per nemanda til Byggingarfélags Námsmana (BN) og þar af leiðir fara 3.800 kr. til SKHÍ, meðal annars á grundvelli þess að félagið sjái um ytri hagsmuna mál okkar, nemenda á íþrótta- og heilsufræðibraut.
Við sameiningu HÍ og KHÍ færðist þetta hlutverk SKHÍ, það er að sjá um ytri hagsmál, yfir til Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ). SKHÍ hefur greitt SHÍ fyrir alla þá þjónustu sem það áður gegndi gagnvart ytri hagsmunamálum nemenda eins og fulltrúi í LÍN, útdeiling og prentun stúdentakorta og afslættir sem þeim fylgja, uppihald hagsmunabaráttu á skrifstofu ráðsins, hagsmunafulltrúa, útgáfa Stúdentablaðsins, sameiginlegar skemmtanir o.m.fl.
SKHÍ greiddi SHÍ alls 258.000 kr., eða 750 kr. á hvern nemenda í staðnámi innan Menntavísindasviðs fyrir þetta skólaár.
Hver nemandi á íþrótta- og heilsufræðibraut greiðir þannig 3.800 kr. fyrir þetta skólaár til SKHÍ í ytri hagsmunabaráttu. SKHÍ greiðir 750 kr. fyrir hvern staðnema til SHÍ fyrir þetta skólaár. Ósamið er hins vegar um gjald SKHÍ-stúdenta til Félagsstofnunar Stúdenta (FS, félag sem þjóna á stúdentum innan HÍ), en við höfum nú þegar aðgang að þeirri þjónustu sem þau veita (t.d. leikskólaplássi).
Eftir að SKHÍ hefur greitt til SHÍ, BN og Vatnsins standa eftir 3050 kr. sem þú hefur greitt til SKHÍ.
Eitt er víst að þessir peningar fara ekki í hagsmunamál nemenda eða aðra réttinda baráttu.
Við í stjórn Vatnsins ætlum að fara fram á það að þessi peningar renni til félagsins, þar sem við teljum að þeir nýtist nemendum á íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ best.
Á næstu dögum mun fara fram undirskriftarsöfnun til að styðja þessa kröfu okkar.
Styður þú þessa kröfu?
Fyrir hönd Vatnsins, nemendafélags nema á íþrótta- og heilsufræðibraut
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, formaður
Nemendafélagið Vatnid
